Foreldrafélag

Foreldrar

Hlutverk foreldrafélagsins er að styðja skólastarfið, stuðla að velferð nemenda og efla tengsl heimila og skóla. Allir forsjáraðilar nemenda í skólanum teljast félagar í foreldrafélaginu.

Stjórn Foreldrafélags Hraunvallaskóla

Aðalfundur foreldrafélagsins er haldin að hausti. Þar er kosin stjórn félagsins ásamt því að fulltrúar eru kosnir til setu í skólaráði. Á kynningarfundum að hausti eru bekkjarfulltrúar skipaðir fyrir hvern árgang sem halda utan um bekkjarskemmtanir í hverjum árgangi. Stjórnin er kosin á aðalfundi félagsins sem er haldinn byrjun skólaársins. Stjórn foreldrafélagsins stendur fyrir jólaföndri, fræðslufyrirlestrum og vorhátíð.

Skólaráð

Tveir fulltrúar foreldra eru kosnir í skólaráð. Æskilegt er að annar þeirra sé einnig í stjórn foreldrafélagsins. Stjórn foreldrafélagsins, í samráði við skólastjóra, auglýsir eftir tilnefningum úr hópi foreldra í skólaráð.

Stjórn 2023–2024

Nafn Hlutverk
Stefán Már Gunnlaugsson Formaður
Svanhildur Ýr Sigþórsdóttir Varaformaður
Viktor Ragnar Þorvadsson Gjaldkeri
Sigríður Harpa Hannesdóttir Ritari
Magnús Róbertsson -
Alma Hannesdóttir -

1. grein. Félagið heitir Foreldrafélag Hraunvallaskóla. Félagar teljast allir forsjáraðilar nemenda skólans.

2. grein. Markmið félagsins er að:

  • vera samstarfsvettvangur foreldra sem eiga börn í skólanum
  • efla og tryggja gott samstarf foreldra og starfsfólks skólans
  • styðja heimili og skóla við að skapa nemendum góð uppeldis- og menntunarskilyrði
  • koma á framfæri sjónarmiðum foreldra varðandi skóla- og uppeldismál
  • standa vörð um réttindi barna til mennta og aukins þroska

3. grein. Tilgangi sínum hyggst félagið ná meðal annars með því að:

  • skipuleggja og halda utan um starf bekkjarfulltrúa í hverjum bekk
  • koma á umræðu- og fræðslufundum um uppeldis- og skólamál
  • kjósa fulltrúa í skólaráð samkvæmt reglum félagsins
  • standa að upplýsingamiðlun til foreldra, meðal annars með útgáfu fréttabréfs og halda úti heimasíðu foreldrafélagsins þar sem birtar eru fundargerðir og annað er viðvíkur starfsemi félagsins
  • veita skólayfirvöldum lið svo að aðstæður til náms og félagslegra starfa verði sem bestar
  • styðja og efla hverja þá starfsemi, sem stuðlar að auknum þroska og menningu skólans
  • taka þátt í samstarfi við önnur foreldrafélög, svæðisráð og landssamtök foreldra

4.grein. Stjórn félagsins skipa 7 foreldrar/forsjáraðilar, æskilegt er að þar af sé einn sem einnig er fulltrúi foreldra í skólaráði. Stjórn skal kjörin til tveggja ára í senn, 3 stjórnarmenn annað árið og 4 hitt árið. Formaður skal kosinn sérstaklega, að öðru leyti skiptir stjórnin með sér verkum. Auk formanns skal stjórnin skipuð varaformanni, ritara, gjaldkera og þremur meðstjórnendum. Aldrei skulu fleiri en 4 ganga úr stjórn í einu.

5.grein. Bekkjarfulltrúar starfa á vegum foreldrafélagsins sem setur þeim starfsreglur. Bekkjarfulltrúar mynda fulltrúaráð foreldrafélagsins. Hlutverk bekkjarfulltrúa er að efla og styrkja samstarf foreldra og barna og leitast við að treysta samband heimilis og skóla innan hverrar bekkjardeildar með nánu samstarfi við umsjónarkennara. Stjórn foreldrafélagsins ber ábyrgð á að í upphafi skólaárs séu kosnir 2 til 3 fulltrúar forsjáraðila úr hverri bekkjardeild til tveggja ára í senn. Í 1. bekk eru einn eða tveir kosnir til tveggja ára og einn til eins árs til að stuðla að því að allir hætti ekki á sama tíma.

6.grein. Aðalfundur skal haldinn í maí ár hvert. Stjórnin boðar til fundarins í samstarfi við fulltrúa foreldra í skólaráðinu með minnst viku fyrirvara. Aðalfundur er löglegur ef löglega er til hans boðað. Í fundarboði skal kynna efni fundarins.

Verkefni aðalfundar:

  • Kosning fundarstjóra og fundarritara
  • Skýrsla stjórnar
  • Skýrslur nefnda
  • Lagabreytingar
  • Reikningar lagðir fram til samþykktar
  • Kosning formanns foreldrafélags og annarra stjórnarmanna
  • Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga 12
  • Skýrsla fulltrúa foreldra í skólaráði
  • Kosning fulltrúa í skólaráð samkvæmt starfsreglum félagsins
  • Önnur mál

7.grein. Stjórn foreldrafélagsins getur skipað nefndir um afmörkuð verkefni. Stjórnin ber ábyrgð á störfum nefnda og setur þeim erindisbréf.

8.grein. Fulltrúaráðið skal koma saman eigi sjaldnar en þrisvar á skólaárinu og oftar ef þurfa þykir. Fyrsti fundur skal haldinn í upphafi skólaárs. Stjórn félagsins undirbýr og boðar til þessara funda. Þar skulu rædd mál er varða markmið og starf foreldrafélagsins, starf foreldra í bekkjardeildum og verkefni skólaráðs. Fulltrúaráð skal aðstoða stjórn félagsins í stærri verkefnum.

9.grein. Stjórn foreldrafélagsins skal ekki sinna klögumálum eða hafa afskipti af vandamálum er upp kunna að koma á milli einstakra foreldra og starfsmanna skólans.

10.grein. Stjórn foreldrafélagsins er heimilt að óska eftir því að foreldrar greiði framlag til félagsins. Þetta framlag er innheimt árlega og er ákveðið á aðalfundi.

11.grein. Ákvörðun um slit félagsins verður tekin með einföldum meirihluta á stjórnarfundi og renna þá eignir þess til skólans.

12.grein. Lögum þessum má breyta með einföldum meirihluta á aðalfundi, enda sé lagabreytinga getið í fundarboði.