Föstudaginn 23. ágúst er skólasetning þar sem nemendur mæta, fá stundatöflur og hitta umsjónarkennarann sinn.

Föstudaginn 23. ágúst er skólasetning þar sem nemendur mæta, fá stundatöflur og hitta umsjónarkennarann sinn. Foreldrar/forsjáraðilar eru hjartanlega velkomnir með nemendum. Við byrjum á sal skólans og þaðan er farið á það heimasvæði sem viðkomandi árgangur verður á.

Skólasetning er sem hér segir:
kl. 09:00 2.-4. bekkur
kl. 09:30 5.-7. bekkur
kl. 10:00 8.-10. bekkur

Hlökkum til að taka móti okkar frábæru nemendum.