Skólasetning 2.-10. bekkjar verður þriðjudaginn 25. ágúst. Í ár verður sú breyting á fyrirkomulagi að skólasetning og skólakynning verða haldnar samhliða. Nemendur mæta ásamt foreldrum/forsjáraðilum á skólasetningu á sal skólans. Að lokinni sameiginlegri dagskrá fara nemendur og foreldrar/forsjáraðilar með umsjónarkennurum á heimasvæði árgangsins þar sem farið verður yfir helstu áhersluatriði skólaársins. Á skólakynningunum verður meðal annars farið yfir: Á skólakynningunum verður meðal annars farið yfir: • námsefni og skipulag náms, • námsmat, • ferðir og viðburði vetrarins, • samskipti heimilis og skóla, • önnur mikilvæg atriði sem varða starfið í hverjum árgangi. Við leggjum ríka áherslu á að hver nemandi eigi fulltrúa á kynningunni þar sem þar verða veittar mikilvægar upplýsingar um skólaárið framundan. Tímasetningar skólasetningar og skólakynninga: Kl. 08:30 – 2.-4. bekkur og Hraunborg Kl. 10:00 – 5.-7. bekkur Kl. 11:00 – 8., 9. og 10. bekkur Gert er ráð fyrir að dagskráin taki um eina klukkustund. Nemendur í 1. bekk mæta í viðtal til umsjónarkennara 25. ágúst en umsjónarkennnarar boða foreldra sértaklega til viðtals. Skólasetning hjá 1. bekk verður að morgni 26. ágúst á sal skólans og að henni lokinni hefst kennsla samkvæmt stundaskrá. Við hlökkum til að taka á móti nemendum og hefja nýtt skólaár saman. Deila Tísta