Hið árlega Ólympíuhlaup ÍSÍ er haldið núna í 41. skiptið og munum við í Hraunvallaskóla hlaupa þriðjudaginn 9. september. Þar sem við eigum 20 ára afmæli þetta skólaárið ætlum við að bjóða öllum foreldrum/forsjáraðilum að hlaupa með okkur.

Nemendur hlaupa mismarga hringi í hverfinu allt eftir vilja og aldri hvers og eins en hver hringur er 2,5 km. Í yngstu hópunum fer starfsfólk með nemendum hringinn þannig að allir viti nú hvert á að fara. Á leiðinni verður starfsfólk með stuttu millibili og hvetur nemendur áfram. Við ætlum að hafa tónlist á víð og dreif í hringnum til að skemmta okkur ennþá meira. Við viljum hvetja foreldra/forsjáraðila til að koma og hlaupa með og/eða hvetja nemendur áfram.

Unglingadeildin hefur hlaupið áheitahlaup undanfarin ár og verður engin breyting á því þetta skólaárið. Nemendur safna áheitum fyrir hvern hring sem þeir hlaupa og hvetjum við alla til að heita á og hvetja nemendur í unglingadeildinni til að hlaupa marga hringi. Við ætlum að styrkja Ljónshjarta sem eru samtök til stuðnings yngra fólki (20-50 ára) sem misst hefur maka og börn þeirra.

Hlaupið byrjar á eftirtöldum tímum eftir árgöngunum:

kl. 09:20 1.-4. bekkur

kl. 09:30 5.-7. bekkur

kl. 09:40 8.-10. bekkur