Nú er komið að árlega GULLDREKA- lóttó leiknum okkar. Leikurinn byrjar fimmtudaginn 2. október og stendur yfir í 2 vikur til 16. október. Tilgangur leiksins er að hvetja nemendur til að fara eftir SMT skólareglum. Nemendur leggja sig fram við að sýna fyrirmyndarhegðun á almennum svæðum skólans (matsal, göngum og skólalóð). Þannig sköpum við saman jákvætt andrúmsloft sem leiðir til betri hegðunar. Allir nemendur eru með í leiknum. Leikurinn gengur út á það að 10 nemendur skólans í 1.-4. bekk annars vegar og 5.-10. bekk hinsvegar, fá einn „Gulldreka“ á dag í 10 daga. Hvor hópur safnar þá samtals 100 „Gulldrekum“. Þar sem þetta er lottó þá geta allir unnið ef þeir bara fara eftir SMT skólareglum. Nemendur sem fá „Gulldreka“ fara með hann til ritara, skila „Gulldrekanum“ og draga númer sem fer á Gulldrekaspjaldið. Að leik loknum er dregnar út vinningsraðir og þeir nemendur sem eiga miða í þeim röðum koma sem fulltrúar árgangsins í veislu og taka á móti viðurkenningu fyrir þátttökuna sem allir í árganginum njóta. Með skólakveðju, SMT- teymið Deila Tísta