Árlega fer 7. bekkur í skólaferð á Reyki þar sem margt skemmtilegt er brallað. Það sem m.a. er gert er að þau eru með tískusýningu, fara í sundlaugarpartý, taka traust-göngu, fara í heimsókn á byggðasafnið og fara í fullt af leikjum. Síðasta kvöldið var svo farið í náttúrulaugina þar sem nemendur nutu náttúru og góða veðursins. í lokin fengu allir derhúfur og var mikið um það að nemendur skrifuðu nöfnin sín á húfurnar hjá öðrum til minningar um frábæra ferð. Hér eru nokkrar myndir úr ferðinni.