Mánudaginn 25. ágúst munum við taka á móti nemendum okkar þetta skólaárið. Skólasetning verður á sal skólans á eftirtöldum tímum eftir árgöngum:

kl. 09:00 2.-4. bekkur
kl. 09:30 5.-7. bekkur
kl. 10:00 8.-10. bekkur og einhverfudeild

Nemendur koma í skólann, fá stundatöflur og hitta kennara sína. Eftir það fara nemendur heim og koma hressir og kátir í skólann þriðjudaginn 26. ágúst samkvæmt stundatöflu.

Nemendur í 1. bekk koma með foreldum/forsjáraðilum í samtal við umsjónarkennara mánudaginn 25. ágúst samkvæmt uppgefnum tímum. Skólasetning þeirra verður síðan þriðjudaginn 26. ágúst kl. 08:15 á sal skólans og eftir það fara nemendur með umsjónarkennurum á heimasvæði.

Nemendur í fjölgreinadeild mæta á uppgefnum tímum mánudaginn 25. ágúst.

Hlökkum til að byrja skólaárið og hitta alla okkar frábæru nemendur og foreldra/forsjáraðila.