Mikið er um að vera í textílmennt hjá 6. bekk þar sem aðalverkefnið er að sauma fjölskyldupúða. Nemendur koma með teiknaðar myndir af höndum þeirra sem þeim þykir væntum og mála á efnið. Það er handsaumað með aftursting og vélsaumað efni í kringum myndina og púðanum lokað. Nemendum þykir þetta verkefni mjög skemmtilegt og hafa komið margar flottar útfærslur af verkefninu eins og má sjá á myndunum hér undir.Þau hafa frjálsar hendur þegar að það kemur að efnisvali og staðsetningum á höndum og því mikil sköpunargleði. Deila Tísta